Viðskiptamanna- og starfsmannakannanir
Hönnun, framkvæmd og úrvinnsla kannana á viðhorfum starfsmanna eða viðskiptavina.
Góð könnun byrjar á réttu spurningunum. Ég aðstoða við allt ferlið, frá því að skilgreina hvað á að mæla til þess að kynna niðurstöðurnar fyrir stjórnendum.
Skipta má þjónustunni í nokkra flokka:
Hönnun kannana
- Markmið könnunar skilgreind í samráði við verkkaupa
- Spurningalisti saminn og prófaður svo spurningarnar séu skýrar og hlutlausar
- Úrtak og tímasetning skipulögð
Framkvæmd
- Könnun sett upp og send á viðskiptavini eða starfsmenn
- Fylgst með svörun og ítrekanir sendar
- Gætt að nafnleynd svarenda þar sem við á
Úrvinnsla og kynning
- Niðurstöður greindar eftir hópum og bornar saman milli tímabila
- Skýrslur og kynningar fyrir stjórnendur
- Mælaborð sem sýna þróun milli kannana
Könnun skilar mestu þegar hún er endurtekin með sama hætti og þróunin er skoðuð yfir tíma
Ég hef komið að yfir 600 viðskiptavina- og starfsmannakönnunum. Settu þig í samband og við finnum út hvaða könnun hentar þínum þörfum.
Önnur þjónusta
Mat á árangri af vefstarfi
Greiningarvinna, uppsetning markvissra mælinga og mælaborð fyrir stjórnendur.
Greining og kynningar
Viðamikil reynsla í framsetningu talnalegra upplýsinga þar sem mikið er í húfi og verk þurfa að vinnast hratt.
Ráðgjöf og vefumsjón
Ráðgjöf í vefmálum, umsjón með samfélagsmiðlum, Google Ads herferðum og póstlistum.